Hvað er að frétta...!!!

júlí 29, 2004

Ég er komin með nýja síðu.....
www.blog.central.is/nannayr

Kveðja Nanna
Rigning..enn og aftur!
Ég nenni ekki að hafa þetta leiðindaveður alltafhreint hérna!...oh...væri alveg til í að fara í sund og fá smá lit sko! Það er langt síðan það var almenilegt veður hérna., en nú er búið að vera vont í 1 og 1/2 viku!!
Heyrðiði, ég var að frétta, sko..að það ætlaði enginn til Akureyrar og Eyja um Versló, heldur væri aðal stuðið hér í Reykjavík! Bara svona segja ykkur það, þar sem að ég get ekki farið úr bænum...svo verið ekkert að fara á þessar útihátíðir, komið frekar bara hingað til mín!!!!:) :)

Ég er eitthvað að velta því fyrir mér að "halda framhjá" Nokia og fá mér Sony-Erikson síma...þarf hinsvegar að athuga það aðeins betur, sjá hvort að það sé þess virði....ég hét því einhverntíman að ég ætlaði aldrei að fá mér annað en Nokia, en nú er ég eitthvað að spá í að fá mér T610 því ég get fengið hann hjá Símanum á tæpan 15.000 kall með 3000 króna sms inneign og 3000 króna inneign í Retró!...hvað finnst ykkur....?

Kv nya

júlí 27, 2004

Komin í borgina!!...
Þá er maður komin heim á ný. Þjónaði á föstudagskvöldinu og var bara búin fyrr en ég hélt í upphafi og brunaði því beint norður. Ég var komin um hálf 5 til Akureyrar, ferðin tók aðeins lengri tíma því ég lenti í mestu þoku sem ég hef séð á Holtavörðuheiðinni og til að bæta gráu ofan á svart var vegurinn alveg ómerktur, engar línur og engir staurar svo maður gat ekki farið hraðar en 20 km hraða:( Á laugardeginum fór ég í nokkrar heimsóknir og eftir að hafa borðað grillmat hjá mömmu fór ég heim til Sigrúnar í partý, við vorum að vísu bara 4 en það var samt stuð. Við vorum svo sóttar af ungum manni og skutlað í partý til Hrafns og vorum þar, þar til við fórum niður í bæ..á Kaffi Ak nánar til tekið...þar var svaka stuð en ég fór aðeins fyrr heim en ég ætlaði...en það var okei...Á sunnudeginum fór ég í nokkrar heimsóknir sem var mjög gaman og afmæli til Alvildu litlu sem er víst orðin átta ára!! Ég lagði svo af stað norður upp úr 6 og stoppaði við í Skorradal hjá Huldu og ættingjum hennar...Á leiðinni frá Skorradal lenti ég svo í vibba rigningu og vindi sem orsakaði að eitthvað stykki fyrir neðan framrúðuna losnaði af og ég gat ekki notað rúðuþurrkurnar (sem var mjög mjög nauðsynlegt) því þær héldu stykkinu niðri..ég keyrði sem sagt í 20 mín án þess að sjá rassgat..ekki gaman...gat ekki stoppað fyrr en við göngin og lagað draslið því ég sá svo lítið þarna og vissi ekki hvar ég gæti stoppað því ég sá svo lítið... :S
 
Nú er ég bara heima að sinna húsverkum..;) þvo og annað skemmtilegt...Er alveg að verða leið á þvottavélinni hennar Írisar því hún var að leka, ekki í fyrsta skiptið, og ég þurfti að sitja yfir henni með vaskafat og 3 handklæði....úff hvað ég hlakka til að fá nýju vélina mína, get ekki beðið!!!! Íris mín, ekki móðgast með þvottavélina, hún er góð miðað við aldur og er í svaka formi, getur hoppað og allt:) :) já og þvær gólf!!! gerð aðrar betur....
 
Fyrsta æfingin var í dag eftir "sumarfrí" og var hún bara mjög skemmtileg..enduðum í fótbolta úti á grasinu og "dökkar" liðið mitt vann 5-2 og ég skoraði 2 mörk:) gaman að vera úti á æfingu meðan sólin er!!!...Ég get samt ekki mætt á næstu 5 æfingar út af vinnunni því ég er að vinna margar margar kvöldvaktir núna í röð...:S
 
Jæja þetta er orðið gott í bili,,,,,,
Nanna Ýr

júlí 23, 2004

Jæja..
Ekkert gaman í dag!! Ég fékk einhverskonar mígrensikast í gærkvöldi og var að drepast í nótt og morgun svo ég komst ekki á Hrafnistuna..lá bara í rúminu en er að verða skárri núna! sem betur fer....
Huldan mín var að koma að utan með dót úr fríhöfninni, við fátæka fólkið komumst ekki í þessar búðir svo hún verslaði bara fyrir mig smá. Svo var hún að segja mér að hún hefði keypt gjöf handa mér! Shawshank redemtion á dvd! Jeij:) ég er ótrúlega glöð!
Já ég verð bara hér í borginni um versló, og um að gera að gera bara gott úr því! Hvað segiði um að allir komi bara til Reykjavíkur og djammi með mér á sunnudeginum? Ég skal hafa partý!!!!!!!!! Allavega verðum við Hulda hér að djamma á sunnudaginn :D


Ætla að keyra af stað í nótt til Akureyrar, nenni ekki að vakna snemma til að keyra...Svo þið fyrir norðan...I´m comming:D
KV nannayr

 
Tók eitthvað "Love Test" og nú sjáiði niðurstöðurnar...hiihhihihi
3
ROMANTIC ONE. The really most most most important
for you is that she/he is romantic. You love it
to get love letters, red roses and be in a
romantic atmosphere. He/She must make you think
that you are the most beautiful of all. When
he/she is romantic she/he has you got in his
hands. When he/she tells you all that he/she
feels for you ,you are devoted to him/her. At
this point you are easy to be tempt. Your heart
is soft and pure and you would never cheat as
long as you love your partner. But if he cheats
you, you are not hiding your feelings and show
how much she/he hurt you because you trusted in
him/her and never thought he/she could do this
to you.PLEASE VOTE, I want to know what you
think about my quiz, I worked hard on it.You
can always message me or tell me how I can
improve that quiz. Ill sure write back.

 ~THE big LOVE TEST!! What do you need? With PICS! For girls and boys!~
brought to you by
3
ROMANTIC ONE. The really most most most important
for you is that she/he is romantic. You love it
to get love letters, red roses and be in a
romantic atmosphere. He/She must make you think
that you are the most beautiful of all. When
he/she is romantic she/he has you got in his
hands. When he/she tells you all that he/she
feels for you ,you are devoted to him/her. At
this point you are easy to be tempt. Your heart
is soft and pure and you would never cheat as
long as you love your partner. But if he cheats
you, you are not hiding your feelings and show
how much she/he hurt you because you trusted in
him/her and never thought he/she could do this
to you.PLEASE VOTE, I want to know what you
think about my quiz, I worked hard on it.You
can always message me or tell me how I can
improve that quiz. Ill sure write back.

 ~THE big LOVE TEST!! What do you need? With PICS! For girls and boys!~
brought to you by
Posted by: Nanna Ýr / 23.7.04 0 comments
3
ROMANTIC ONE. The really most most most important
for you is that she/he is romantic. You love it
to get love letters, red roses and be in a
romantic atmosphere. He/She must make you think
that you are the most beautiful of all. When
he/she is romantic she/he has you got in his
hands. When he/she tells you all that he/she
feels for you ,you are devoted to him/her. At
this point you are easy to be tempt. Your heart
is soft and pure and you would never cheat as
long as you love your partner. But if he cheats
you, you are not hiding your feelings and show
how much she/he hurt you because you trusted in
him/her and never thought he/she could do this
to you.PLEASE VOTE, I want to know what you
think about my quiz, I worked hard on it.You
can always message me or tell me how I can
improve that quiz. Ill sure write back.

 ~THE big LOVE TEST!! What do you need? With PICS! For girls and boys!~
brought to you by
Hehe...
Var að horfa á 70 mínútur og handboltalandsliðið var að flengja Huga í sturtu..greyið maðurinn var þokkalega rauður og sár á rassinum á eftir..myndi aldeilis ekki vilja vera hann..::S:S:s..sS
Ég ælta að skreppa norður um helgina..legg hins vegar ekki af stað fyrr en á föstudagsnóttina því ég þarf að þjóna í 40 partýinu. Það verður ljúft að fá mömmumat svona einu sinni og komast í bað (baðkar sko, fer bara í sturtu hér í rvk) :D
Ég svaf svona rosa yfir mig í dag. Fór í spinning með Sigrúnu kl hálf 7 í morgun og kom svo heim og ætlaði að leggja mig til hálf 11 en neinei mín vaknaði bara klukkan 1!!!! og annan daginn í röð! hvað er að gerast
en er farin að leggja mig......cyah
Posted by: Nanna Ýr / 23.7.04 0 comments

júlí 20, 2004

Halló alle sammen
Vúhú...er að fara að þjóna á föstudagskvöldið í fertugsafmæli...maður ætti bara kannski að hætta í líffræðinni og fara í þjónaskólann..hihi...samt smá stressandi, ég verð ein en ekki með Brynju eins og alltaf í vetur:S en það hlýtur að bjargast!
Ég fór í hádeginu með Söru, Sunnevu og Dýrleifu að borða á 67, svaka gott, allavega hvítlauksbrauðið, besta hvítlauksbrauð ever þarna...
Á mánudaginn byrjar handboltinn svo aftur á fullu. Það verður ágætt, nema ég held að þetta eigi eftir að vera eitthvað púl núna næsta mánuðinn....úff....veit allavega af einu hlaupaprófi sem verður bráðum.
Well....er farin að leika við Dillu!!!...
síja...nya
Posted by: Nanna Ýr / 20.7.04 0 comments

júlí 18, 2004

Góðan dag...
Oh hvað mér leiðist,, hef ekki gert neitt í dag frá því að ég vaknaði. Og hef svo sem ekkert að gera þar sem Hulda er í DK. . hún er eitthvað að spá í að lengja ferðina um viku, en ég get ekki sagt að ég sé sammála því uppátæki hjá kellunni...
Í gær fór ég í sund þegar ég vaknaði, fór ein í sundið (mjög einmanalegt) en hitti sem betur fer Arnar Inga og Krissa.. Við lágum í sólbaði alveg heillengi enda var svo gott veður og maður fékk bara jafnvel smá lit!!
Ég er eitthvað slöpp í dag:( með hausverk og leiðindi svo ég nenni ekki að æfa neitt í dag. Maður tekur sig svo á á morgun.....
Ég get ekki beðið eftir að fara í frí um næstu helgi..ohh hvað það verður ljúft! Ég ætla pottþétt að gera eitthvað skemmtilegt! Fara eitthvað eða eitthvað þannig...
 
Jæja ætla að halda áfram að láta mér leiðast.....    Leiter.....   Nýa

Posted by: Nanna Ýr / 18.7.04 0 comments

júlí 15, 2004

Sæl veriði!
Ég er svo dugleg, að það er bara ótrúlegt;) Fór í spinning í morgun með Sigrúnu og Ástu og fór svo í vinnuna..við Ásta fórum svo AFTUR í ræktina klukkan hálf 5 og vorum mjög duglegar!! Eftir það fór ég í ljós og svo heim og eldaði mér kjúkling og grænmeti og borðaði svo einhverja blandaða ferska ávexti sem ég keypti í 10-11.... Er ég ekki dugleg?? :D spurning að fá sér feitt bland í poka í kvöld:)
Annars er ég að byrja á næturvaktatörn á eftir með Sonjum og við ætlum að hafa það gott og horfa á 24 syrpuna, sem ég hef aldrei séð, en allri segja að séu svo spennandi...
Já, ég er að lesa DaVinci lykilinn og ég hef bara sjaldan lesið eins spennandi bók..allavega langt síðan, bara betri en Harry Potter!!:) en þið sem hafið ekki lesið hana,,,,GERIÐ ÞAÐ ...

Rósa mín til hamingju með afmælið í gær...Bara 6 ár þar til þú verður þrítug,,múhahahhaa..........

Jæja best að reyna að leggja sig svo ég meiki nóttina!.....

Bless.....Nanna Ýr
Posted by: Nanna Ýr / 15.7.04 0 comments

júlí 11, 2004

Hæ hæ og hó hó
Um helgina var ég á Þingvöllum í bústað með nokkrum Víkingsgellum, þeim Margréti (sem "á" bústaðinn), Steinunni, Ástu og Önnu og svo Sigrúnu..Við komum um hálf 2 á laugardeginum og byrjuðum á því að fara í smá gönguferð til að sjá útsýnið yfir vatnið. Ekkert smá fallegt þarna skal ég segja ykkur:) Þegar við komum til baka fórum við í aksjonarí og auðvitað unnum við kjúklingaliðið:) Um kvöldið grilluðum við svo og váaaaááá hvað við borðuðum mikið! Við héldum sko að við hefðum keypt of mikið af mat og nammi, en neinei það var sko aldeilis ekki:) Eftir matinn fengum við okkur bjór og fífluðumst eitthvað fram eftir nóttu....útskýrum það ekkert nánar:)
Í morgun sváfum við svo út sem var agalega gott...og vorum komnar í bæinn um hálf 3.
Ég fór svo til Gretu að hitta Sigrúnu Björk sem hefur nú verið á Spáni í 1 ár, ekkert smá gaman að hitta gelluna...
Eftir því fór ég í vinnuna, mar er svo duglegur að taka aukavaktir að það er ótrúlegt...skráði mig svo á 13 tíma vakt á þriðjudaginn...:S
Núna á eftir er svo planið að fara í bíó með Huldu..það verður örugglega stuð...
Heyrðu við Hulda komumst að því afhverju við eigum ekki kærasta núna á föstudaginn..við ætluðum á kaffihús og vorum orðnar fínar og svona en nenntum svo ekki út úr bílnum og rúntuðum bara og fórum að borða á Aktu Taktu....mjög dapurt hjá okkur verð ég að segja....:S
nannayr
Posted by: Nanna Ýr / 11.7.04 1 comments

This page is powered by Blogger. Isn't yours?